Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Aldrei spurning...

Auðvitað kláruðum við Arsenal í þessum leik, aldrei spurning.... Missti reyndar af leiknum, þar sem ég sat á héraðsdómaranámskeiði hjá KSÍ, en hoppaði hæð mína þegar ég heyrði úrslitin (það er reyndar ekki mjög hátt). Arsenal menn eru reyndar eitthvað væla yfir þessu, heimtandi vítaspyrnu hér og þar, en eru ekki búnir að átta sig á því að það þýðir voð lítið að væla um svona eftir á. Það sem gildir er bara spila eins og menn, en ekki vera vælandi og skælandi úti í horni Tounge. Allavega við erum enn og aftur komnir í undanúrslit og nú er bara að vinna Chel$ki þar og klára málið!!

 

 Eins og kom fronaldo-the-simpsonsram áðan þá sat ég á námskeiði í kvöld hjá Gylfa Orrasyni dómara. Þetta námskiði veitti mér héraðsdómararéttindi í knattspyrnu og er ég bara ánægður með það og nú er stefnan bara á það að dæma enn fleiri leiki á næsta ári enn því síðasta. Því að þó að ég hafi í raun farið á unglingadómaranámskeið í fyrra með hálfum hug og hélt að þetta væri ekkert fyrir mig, þá komst ég að því s.l sumar að þetta er bara rosalega skemmtilegt starf og krefjandi, og það er ekki laust við að maður ákveðið "kick'' út úr því að dæma leiki, sérstaklega þar sem hiti er í mönnum og þeir láta vel í sér heyra. En það ætti allavega að vera hægt að sjá mig á vellinum í sumar, í svarta búningnum að veifa gulum og rauðum spjöldum eða flaggi!

 


mbl.is Liverpool og Chelsea sigruðu og mætast í undanúrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formaður eða Forkona - Skiptir það virkilega máli....

Ég var svo heppinn að fá að sitja ansi merkilegan bæjarstjórnarfund um daginn, n.t.t var það 37. fundur bæjarstjórnar og var hann haldin þann 6 mars s.l. Á þessum fundi var svosem ekki mikið sem lá fyrir en logoþó var eitt mál á sem vakti meiri áhuga hjá mér en önnur, en það var seinni umræða um jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar. Við fyrsta lestur leit jafnréttisáætlunin bara vel út, ekki var bara talað um jafnrétti milli karla og kvenna, heldur líka nýbúa, barna o.s.frv. og er það vel. Guðmundur Þorgrímsson oddviti B-listans  ákvað þó að sveipa merki framsóknar bleiku þennan dag og lagði í því skini fram eftirfarandi tillögu:   

“Undir yfirskriftinni Fjarðabyggð sem vinnuveitandi, vinnur að jafnri stöðu kynja innan stofnana og fyrirtækja Fjarðabyggðar.Fyrsta aðgerð orðist svo:

 01GTLögð verði áhersla á að störf flokkist ekki í kvenna- og karlastörf. Atvinnuauglýsingar skulu vera kynhlutlausar. Starfsheiti geta eftir atvikum verið hvort heldur karlkyns eða kvenkyns og birtast þannig í skipuriti bæjarins.

GreinargerðÍ ljósi þeirra áherslu sem lögð er á jafnrétti kynjanna þykir eðlilegt að starfaheiti hjá Fjarðabyggð geti borið með sér hvort kona eða karl gegnir starfinu ef þess er óskað. Þannig birtist heitin sem bæjarstjóri/bæjarstýra – félagsmálastjóri/félagsmálastýra – forstöðumaður/forstöðukona stjórnsýslu o.s.frv.”

Þarna seig nú brúnin á mér lítið eitt og ég spurði mig í huganum hvort að virkilega væri ekkert þarfara í jafnréttisbaráttunni en það að karpa um það hvort starfsheiti ákveðinna embætta sé karlkyns eða kvenkyns, fullkomið jafnrétti hlyti þá, í augum þessara manna, að vera ef þessi embætti myndu bera hvorukynsnöfn. Og þess utan eru ekki nema um 3 mánuðir síðan að nýtt stjórnskipulag var innleitt í Fjarðabyggð og þá heyrðist ekki bofs í meirihlutanum um þessar að þessara breytinga væri svo brýn þörf að ekkert mætti kom í veg fyrir þær.

Það er svo kannski rétt að geta þess að á fundinum fóru fram líflegar umræður um málið, og sem oftar var það bæjarstjórinn okkar ágæti, Helga Jónsdóttir, sem hélt uppi vörnum fyrir meirihlutann. Þó virtust hún og Guðmundur ekki vera alveg sammála um það hvort hún hefði farið fram á þetta eður ei, fyrst mátti skilja Guðmund þannig að svo væri, en þegar að bæjarstjórinn var búin að koma upp og þverneita því breytist hljóðið í Guðmundi lítið eitt.

framsoknNú má alls ekki miskilja mig, ég styð að sjálfsögðu allt jafnrétti og styð allt það sem verður til þess að jafna hlut kvenna og karla, þetta er bara mál sem mér finnst vera svo dæmalaust fáránlegt að það nær ekki nokkurri átt. Því miður enda  eru þau ansi mörg embættin sem bera karlkyns heiti og  mönnum ekki dottið í hug að breyta þeim, þrátt fyrir að kona gegni embættinu, mætti þar nefna að Inger L. Jónsdóttir er ennþá, að ég best veit, sýslumaður á Eskifirði, en ekki sýslukona. Og í raun merkilegt að formaður íþrótta,-menningar-, og ferðamálanefndar, sem er framsóknarkona skuli enn vera titluð formaður en ekki forkona, eða á maður að segja forkvinna.....Nei, ég held að það séu mun stærri mál en þetta í jafnréttisbaráttunni sem þessi nýja rauðsokkuhreyfing í Fjarðabyggð  ætti að reyna að beita sér fyrir....

Já sæll......

Ég held að ég sé búin að finna það út að ég sé barasta alls enginn bloggari.... í mesta lagi svona skorpubloggari. En hef samt hugsað mér að gera eina tilraun enn, og gá hvað gerist. Ætla svosem ekki að lofa neinum rosalegum skrifum, en vonandi eitthvað. Efast reyndar um að nokkur maður sé að kíkja á þessa síðu lengur, en þeim fjölgar kannski eitthvað með tímanum


« Fyrri síða

Ég er.....

Þórður Vilberg Guðmundsson
Þórður Vilberg Guðmundsson

Kallaður Doddi svona dagsdaglega!

Reyðfirðingur, í húð og hár

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband