18.12.2008 | 15:00
Of langt gengið...
Maður ætti náttúrlega ekki að vera veita þessum fámenna hóp öfgasinnaðra mótmælenda athygli. En það margt í málstað þessa fólks sem hræðir mig.
Þeim finnst allt í lagi að beita ofbeldi til að koma fram málstað sínum
Eignaspjöll eru eðlilega í þeirra huga, svo fremi sem menn hafi réttan málstað að verja
Það er í lagi að grýta menn út á götu. Það er bara svolítið fyndið
Þetta fólk telur dómstól götunar bestan til þess fallin að skera úr um það hvort eitthvað misjafnt hafi átt sér stað
Að sama skapi má lögreglan ekki beita neinum ráðum til að stemma stigum við eignaspjöllum og ofbeldi þessa hóps. Þá er staðið upp og það kallað brot á mannréttindum etc. etc.
Mér þykir þetta vond þróun, mönnum er að sjálfsögðu frjálst að mótmæla, en þeim sem eiga að halda uppi lögum og reglu í samfélaginu ber líka skylda til að stoppa mótmæli sem ganga of langt. Þessi mótmæli hafa undanfarna daga gengið alltof langt.
Mótmæli halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Ofbeldi". "Grýta". Ég held þú ættir að fjárfesta í orðabók.
Nonni, 18.12.2008 kl. 15:52
Á nú reyndar hinu fínustu orðabók...
Ég hef ekki betur séð undanfarna daga en ofbeldi hafi verið beitt. T.d þegar mótmælendur reyndu að brjótast framhjá lögreglunni við ráðherrabústaðinn og þegar þeir brutust upp á þingpalla
Og var ekki þessi drengur þarna í viðtalinu í þessari frétt að monta sig af því að hafa hent snjóbolta í Jón Ásgeir. Ég heyrði ekki betur...
Þórður Vilberg Guðmundsson, 18.12.2008 kl. 16:28
Reyðfirðingur.......snjóbolti!!!!!!
Haraldur Bjarnason, 18.12.2008 kl. 23:44
Snjóbolti eða eitthvað annað... skiptir ekki máli Haraldur
Þó að mér hafi orðið uppsigað við einhvern aðila, þá hef ég þó en borið gæfu til þess að grýta hann ekki með snjóbolta ef ég mæti honum á götu.
Ætli það heiti ekki að hafa vott af skynsemi... eða sómatilfinningu...??
Þórður Vilberg Guðmundsson, 19.12.2008 kl. 06:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.