Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Ég vinn á leikskóla!

Í nóvember á síðasta ári ákvað ég að gera svolítið sem mig hafði lengip langað til að gera. Þá sótti ég um starf á leikskólanum hérna í bænum, Lyngholti. Þetta var eitthvað sem hafði blundað í mér lengi að prófa að gera, og þegar ég ákvað að taka mér frí frá námi, eftir stúdentspróf í vor, ákvað ég bara að slá til.

Og ég fékk sko viðbrögð við þessu, vá.... ég sver að viðbrögðinn hefðu ekki verið svona mikil þó ég hefði ákveðið að gerast meðlimur í Vinstri grænum. Fólk stoppaði mig meirað segja út á götu og hrósaði mér fyrir þennan mikla kjark sem þetta hlyti að hafa kostað að gera þetta. Það var engu líkara en ENGINN karlmaður hefði nokkurn tíma unnið á leikskóla á allri plánetunni. 

Ég verð að segja að ég skil ekki alveg hvað menn áttu við með að það þyrfti einhven sérstakan kjark til að fara að vinna á leikskóla, það er ekki eins og ég hafi sótt um vinnu við að fóðra krókódíla. Þetta er í raun ekkert ósvipað hverri annari vinnu, nema þá kannski helst að hún er miklu meira gefandi, og skemmtilegri. Þarna fær maður ekki bara að umgangast skemmtilega vinnufélaga, heldur eru einstaklingarnir sem þú ert að vinna með (börnin) alveg einstaklega skemmtileg og óþrjótandi uppspretta skemmtilega uppákoma á degi hverjum.

En svo voru auðvitað þeir til sem sögðu að ,,þetta hefði bara helvíti sniðugt, þægileg vinna, kostar enga krafta og þú kemur óþreyttur heim á kvöldinn''  En ónei, það er sko langt frá því að vera staðreynd. Oft þegar maður kemur heim er maður hreinlega bara dauðuppgefinn, ekki kannski líkamlega, en svona starf krefst þess að þú sért með heilann að störfum allan daginn, frá því þú mættir og þar til þú ferð heim. Auk þess þarftu; þolinmæði í RÍKU - mæli, athyglina 100% á því sem þú ert að gera, taka vel eftir og hlusta ofl. ofl. ofl.

Svo heyrði maður að sjálfsögðu líka fólk sem var svo hissa að karlmaður á besta aldri skyldi sækjast eftir því að vinna svona ,,kvennastarf´´. Í augum margra eru greinilega bara konur sem geta séð um börn. Karlmenn bara einfaldlega kunna það ekki. En hvernig er þetta inná heimilum, eru það þá bara konurnar sem sjá um börnin. Ónei, ég leyfir mér að fullyrða að á lengflestum heimilum í dag er það svo að karlar taka mikinn þátt í uppeldinu og enginn sér neitt að því. Er því þá ekki eins háttað á leikskólunum?  Hvað er örðuvísi þar? Auðvitað veit ég að meirihuta kennara/leiðbeinanda á leikskólum landsins eru konur og svo verður áfram. En ég held að það sé ekkert nema gott og heilbrigt fyrir börnin þar að karlmenn séu þar líka.

En allavega, ég er ánægður að vinna þar sem ég er. Það er svo gaman að mæta í vinnuna og vita að það er enginn hætta á því að dagurinn í dag verði eins og dagurinn í gær. Þú ert alltaf að fást við ný og ný verkefni. Eitt er allavega víst að þegar dvöl minni á Lyngholti lýkur í haust þá verður þetta ár búið að gefa mér svon miklu meira í reynslubankan heldur en allar þær vinnur sem ég hef hingað til unnið. Og það sem meira er að ég hef fengið að kynnast fullt af nýju fólki, á öllum aldri.  


Ég er.....

Þórður Vilberg Guðmundsson
Þórður Vilberg Guðmundsson

Kallaður Doddi svona dagsdaglega!

Reyðfirðingur, í húð og hár

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband