Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Frjálslyndiflokkurinn ætlar sér greinilega stóra hluti í NA-Kjördæmi ;)

Ég er enn á lífi. Svona fyrir þá sem voru farnir að hada annað. Verð að fara að blogga héna oftar.

 .........................................................................................................................................................

Heyrði áðan að Sigurjón Þórðarsson þingmaður Frjálslyndaflokksins ætlar að settjast í fyrsta sæti á lista flokksins í  NA-kjördæmi. Sigurjón var annar á lista Frjálslyndra í NV-Kjördæmi fyrir kosningarnar 2003 og náði þá inn. Síðan þá hefur hann verið duglegur að koma í ræðustól á Alþingi, ásamt félögum sínum, og tala um allt og ekki neitt (aðalega ekki neitt). Nú er hann greinilega að færa sig svo að framsóknarkommúnistinn með frjálslyndahjartað, Kristinn H. Gunnarsson komist  í annað sæti í NV. Þar að auki sjá Frjálslyndir sér leik á borði og senda eitt sitt ,,stærsta´´ nafn hingað austur til þess að reyna að hala inn einhver atkvæði, sem ekki hefur gengið alltof vel hingað til. Og mun að öllum líkindum ekkert ganga betur núna. Ég hef enga trú á að hin rasíski málflutningur þeirra í málefnum innflytjenda eigi eftir að gefa þeim mörg atkvæði hérna, en það virðist vera það eina sem þeir hafa fram að færa. Það spurning hvort að hann komi til með að berjast fyrir því að á Langanesi verði starfrækt einangrunarstöð þar sem þeir örfáu útlendingar sem hingað ættu að fá að koma (að mati Frjálslyndra) verði geymdir í eina sex mánuði, svo þeir beri nú örugglega enga hættulega sjúkdóma hingað til lands, og spilli alls ekki hinum hreina kynstofni okkar. Tja... maður spyr sig!!

 En ég segi bara Sigurjón vertu velkominn í NA-Kjördæmi.

.............................................................................................................................................................

Að lokum vil ég svo óska Heimdellingum til hamingju með 80 ára afmæli félagsins. Það hefur örugglega verið haldinn góð veisla í kv-ld og ekki hefði nú verið leiðinlegt að vera þar Wizard

 


Góð Ályktun frá SUS

Stjórn SUS sendi frá sér ályktun í dag, um hin fáránlega ,, samning´´ sem gerður var á milli ríkisstjórnarinnar og og Bændasamtaka Íslands. Í þeim samningi sendur meðal annars að íslensk suaðfjárrækt sé styrkt um litla 16 MILLJARÐA. Slíkar niðurgreiðslur á einni f ramleiðsuvöru í krafti skattmheimtu eiga auðvitað engan rétt á sér, enda finnst mér að slík forræðishyggja, sem í slíku er fólgin, sé hreinn og beinn glæpur. Það er náttúrulega algerlega fáránlegt að ríkið hyggli svona einni framleiðsugrein umfram aðra, og segi þar að auki að þetta sé allt með því markmiði að örva markaðsvitund bænda, og halda jafnvægi milli framleiðslu og eftirspurnar.

 Nei má ég þá frekar biðja um að Íslenskur landbúnaður verði losaður úr höftum miðstýríngar, að hann fá á blómastra á eigin verðleikum og, enda ætti bændastéttin að vera fullfær um að standa á eigin fótum. Og mun að mínu mati standa mun sterkarki þannig heldur en að vera mjólkuð á ríkisspenanum sí og æ. Þannig yrði komið á sönnu jafnvægi milli framleiðsu og eftirspurnar, og markaðsvitund bænda efld


mbl.is Ungir sjálfstæðismenn gagnrýna sauðfjársamning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er.....

Þórður Vilberg Guðmundsson
Þórður Vilberg Guðmundsson

Kallaður Doddi svona dagsdaglega!

Reyðfirðingur, í húð og hár

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband