Leita í fréttum mbl.is

Er þetta stefnan í atvinnumálum??

Ráðist skal í sértæk átaksverkefni með öflugum vinnumarkaðsaðgerðum til að vinna gegn atvinnuleysi.

 

Þetta er setning úr stjórnarsáttmála nýrrar minnihlutastjórnar Samfylkingar og VG. Þetta er mál að sjálfsögðu allir geta tekið undir og vilja vinna að. En þegar ég rak augun í þetta í dag gat ég ekki varist þeirri hugsun að kannski væri þessi setning í stjórnarsáttmálanum bara orðin tóm.

 

Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra hinu ýmsu málefna, hefur sagt að hann komi til  með að endurskoða ákvörðun fyrrverandi  Sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar í atvinnuskyni. Ákvörðun sem getur skapað um 200 ný störf á NV-landi

 

Kolbrún Halldórsdóttir segir að ekki komi til greina að álver verði reist á Bakka. Framkvæmd sem getur tryggt ansi mörg störf á Norðurlandi. Reyndar talar hún þar í kross við Össur Skarphéðinsson Iðnaðarráðherra, en það er svosem eitthvað sem við megum búast við í þessari vinstristjórn

 

Er þetta atvinnustefna hinnar nýju ríkisstjórnar?

Vil að lokum benda á mjög góða grein hjá Gunnari um kosningu á forseta þingsins í dag. Hana má finna hér


Af málefnum vinstristjórnar..

Þá hefur ný ríkisstjórn tekið til starfa. Minnihluta stjórn Samfylkingar og VG, með stuðningi Framsóknarflokksins. Ég hef undanfarið verið að skoða hin nýja stjórnarsáttmála og verð að segja að mér þykir það heldur ómerkilegt plagg. Uppfullt af innantómu orðagjálfri.

Stærsta mál þessarar stjórn, og væntanlega þá það mikilvægasta, virðist vera að reka Davíð Oddsson úr Seðlabankanum og breyta skipuriti hans. Þetta á að gera án þess þó að nokkur maður hafi getað bent á afglöp Davíðs í starfi. Málið er þess vegna bara pólitískt. Þá á að reka Davíð Oddsson vegna pólitískra skoðana hans. Ég veit allavega ekki til þess að bent hafi verið á þau brot hans í starfi sem geta verið brottrekstrar sök.Nú skal ég taka undir þá skoðun að ákveðnar breytingar verði að gera í SÍ. en sé samt ekki alveg að það sé það mál sem skipti heimilin´og atvinnulífið mestu máli

 Það hefur líka verið ákaflega gaman að sjá það fólk sem myndar þessa nýju stjórn éta ofan í sig fyrri ummæli sín um hitt og þetta. Svo miklu hafa þau þurft að að torga að þeim hlýtur að vera orðið bumbult. Við skulum rifja upp nokkur atriði:

  1. Afstaða Steingríms J. og fleiri þingmanna VG um IMF. Það er ekki langt síðan að SJS sagði að sennilega væri best að skila láninu
  2. Evrópumálin: Samfylkingin sagði bara rétt fyrir jól að ef að Sjálfstæðisflokkurinn yrði  taka upp hina einu rétta afstöðu í Evrópumálum annars yrði stjórninni slitið
  3. Gylfi Magnússon sagði á einhverjum útfundinum hjá Herði Torfa að Ríkisstjórnin yrði að víkja, og enginn sem þar væri mætti koma að endurreisn landsins. Veit ekki betur en að Gylfi Magnússon sitji núna í ríkisstjórn undir forsæti Samfylkingar
  4. Frysting eigna auðmann, var eitt af helstu baráttumálum VG, ekkert hefur meira heyrst af því, og verður væntanlega ekkert meira miðað við orð dómsmálaráðherra í gær

Svona gæti maður haldið áfram í lengi. Auk þess má benda á að eins og í öllum vinstristjórnum er að sjálfsögðu hver höndin komin upp á móti annarri. Kolbrún Halldórsdóttir hefur t.a.m sagt að álver á bakka sé úr myndinni en Össur Skarphéðinsson hefur sagt að það sé enn á teikniborðinu.

Það verður gaman að sjá hversu lengi þessi ríkisstjórn lifir..


mbl.is Pólitískar hreinsanir og heift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri beygja....

Þá er það orðið ljóst. Innann fárra daga sest við völd vinstristjórn, reyndar minnihlutastjórn sem nýtur hlutleysis framsóknar. Þetta eru að mínu mati alveg hreint skelfileg tíðindi fyrir Íslenska þjóð. Þær vinstristjórnir sem hingað til hafa setið hafa ekki gert það svo gott. Hafa reyndar yfirleitt náð að klára kjörtímabilið, enda hafa Íslenskir vinstrimenn aldrei geta komið sér saman um neitt nema að vera ósamála.

Steingrímur J. ákvað í gærkvöldi, þegar það hentaði honum, að slá Þjóðstjórnar möguleikann útafborðinu og bar fyrir sig að hann gæti ekki séð að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur gætu unnið saman eftir skeyta sendingar milli flokkana í gær. Ákaflega merkileg afstaða, ekki kannski síst í ljósi þess að Steingrímur sjálfur hefur verið iðin við að senda Samfylkingunni tóninn, en það hins vegar kemur ekki í veg fyrir að hann treysti sér til að mynda stjórn með þeim.

Á sama tíma kemur Ingibjörg Sólrún fram og segir að stjórnarsamstarfið hafi verið algerlega ómögulegt. Það sem hún á við þar er væntanlega að henni þótti Sjálfstæðisflokkurinn ekki nógu undirgefinn sér. Hún slær sinn flokk til riddara með því að segja að þau hafi axlað sína ábyrgð með því að Björgvin G. hætti og tekið var til í FME. Segir um leið að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki viljað að tekið yrði til með hraði í Seðlabankanum. Sannleikurinn er sá að Sjálfstæðisflokkurinn hafði fullan vilja til að hreinsa til í Seðlabankanum á því strandaði ekki, en það yrði gert á sömu forsendum og í FME. Við skulum hafa það í huga að Jónas Fr. hættir ekki fyrr en 1. mars!

En það sem að virtist gera útslagið var það að Sjálfstæðisflokkurinn var ekki til í að gefa eftir forsæti í ríkisstjórn. Fyrst bauð sagði Samfó að í forsætið skyldi setjast "verkstjóri" utan úr bæ, uppúr hádegi í gær hafði sá ´"verkstjóri" breyst í Jóhönnu Sigurðardóttur!!

........Jóhanna sem er einn helsti talsmaður aukinna ríkisútgjalda.

.......Jóhanna sem stóð hörð á móti og neitaði að skera niður í sínu ráðuneyti þegar sýnt var að slíkt var nauðsynlegt.

Hélt Samfylkingin virkilega að Sjálfstæðiflokkurinn myndi láta af hendi forsæti í ríkisstjórn til mun minni flokks? Og um leið myndu hlutföll innan stjórnarinnar ekkert breytast? Í mínum huga er það ljóst að þessi krafa var eingöngu sett fram til þess að sprengja þetta samstarf. Það hreinlega liggur í augum uppi.

Nú verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessum stjórnarmyndunar viðræðum. Það verður þó væntanlega samkomulag um að gera sem minnst. Gera mér þó vonir um það að Steingrímur komi fram fljótlega og sveifli sínum margfræga töfrasprota. Ekki gleyma því að hann er jú maður með ráð undir rifi hverju og verður væntanlega ekki lengi að kippa hér öllu í lag.....


mbl.is Falið að mynda stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað yrði gert annarsstaðar..???

Fylgdist með mótmælum við Alþingishúsið í dag og fór að velta mér þvílíkt langlundargeð lögreglumenn hafa sýnt í öllum þessum látum. Maður fer ósjálfrátt að velta fyrir sér hvernig viðbrögðin yrðu ef mótmælendur myndu gera aðsúg að þinghúsinu í London, Kaupmannahöfn eða Berlín.  Hugsa að hægt yrði sé að fullyrða að viðbrögð lögreglu yrðu mun harðari en þau sem við höfum hingað til séð hér á landi.

Mótmælendur hafa verið duglegir að koma fram og kvarta undan framferði lögreglu. Segja að hún beiti óþarfa ofbeldi, handtaki fólk af ástæðulausu og handtaki jafnvel ólögráða börn. Á móti hlýtur að vera hægt að spyrja hvort eðlilegt sé að börnum allt niður í 11 ára aldur standi í fremstu víglínu mótmæla? Og hvort að það sé í raun ekki bara eðlilegt þegar mótmælendur beita aðgerðum sem eru ofbeldisfull og reyna að koma í veg fyrir að lýðræðislega kjörinn stjórnvöld sinni störfum sínum, að þá beiti lögreglan einhverjum þeim aðferðum sem hún hefur til að koma í veg fyri slíkt? Hvað er athugavert við það? Ég bið fólk að hugleiða þann punkt sem ég hóf bloggið á að ef sambærilegir atburðir ættu sér stað í löndum í kringum okkur myndi lögregla þar sennilega beita sömu ef ekki harðari aðgerðum... annarsstaðar


mbl.is Enn mótmælt við þinghúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísrael - Palestína

Nú eru liðnar þrjár vikur síðan að Ísraelar hófu árásir sínar á Gaza svæðið. Það hefur verið hrikalegt að fylgjast með framgangi mála á þessu svæði undanfarið, að horfa uppá mikið mannfall fólksins á Gaza.

Ekki ætla ég að taka afstöðu með einum eða neinum í þessu stríði, til þess hefur maður hreinlega bara ekki nægilega þekkingu á málinu. Það er mín skoðun að báðir aðilar beri þarna nokkra sök á hvernig komið er. Ísraelar verða að nota rétt sinn til þess að verja sig fyrir árásaum hryðjuverkasamtaka eins og Hamas, en á móti verða Ísraelar að sína einhverja skynsemi í árásum sínum og gera sér grein fyrir mætti sínum.

Menn hér á landinu kalda hafa verið duglegir við að gagnrýna Ísrael, heimta fordæmingu, og slit á samskiptum. Í því máli hafa menn gleymt að Ísraelar eru að berjast við hryðjuverkasamtök sem eru alls ekki saklaus. Hamas samtökin hafa hingað til t.d beit fyrir sig saklausum borgurum, sjúkrabílum, sjúkrahúsum, skólum ofl. í hernaði sínum. Gleymum því ekki heldur að Hamas samtökin viðurkenna ekki tilverurétt Ísraela.

Auk þess hefur verið furðulegt að fylgjast með umræðum um átökin. Einstaklingar og samtök hafa farið mikinn síðan 27. des og talað um grimmdarverk Ísraela og alla þá saklausu borgara sem hafa fallið. Ég mann ekki til þess að umræðan hafi verið viðlíka um áralöng átök í Sri Lanka, þar sem stjórnarhermenn beita nú öllum ráðum til þess að berja niður Tamíl Tígra, þar er engum sýnd miskunn, hvorki konum, börnum né hermönnum. Í ýmsum ríkjum afríku hafa verið átök undanfarinn ár þar sem börn eru oftar en ekki þátttakendur.

Nú var ég ekki að reyna að verja Ísraela, en bendi hinsvegar á að menn verða að vera sanngjarnir í sínum málflutning, og taka allar þætti málsins inní áður en menn standa upp og hrópa.


mbl.is Óskar Hamas til hamingju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af evrópumálum...

Í því gjörningaveðri sem geisað hefur á landinu síðan í haust hefur umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu gerst æ háværari. Ákveðnum stjórnmálaflokki hefur tekist að stimpla það inn hjá hluta þjóðarinnar að aðild að þessum samtökum sé okkar eina von, og notið til þess stuðnings helstu fjölmiðla landsins. Mikið hefur verið gert úr kostum sambandsins, og menn duglegir við að draga það fram hve yndislegt verður að búa í þessu landi ef við förum þarna inn. 

Ég hef velt þessu máli töluvert fyrir mér og verið duglegur við að sækja fundi um málið að undanförnu. Ekki ætla ég þó að segja að ég sé orðinn sérfróður um málefni sambandsins, enda væri það nú til að æra óstöðugan. Þó hef ég getað áttað mig því að aðild fylgja nokkrir og töluvert stórir gallar.

Stærstu gallar ESB í mínum huga eru sennilega sjávarútvegs og landbúnaðarmál. Þetta eru málaflokkar sem skipta okkur miklu máli. Það er alveg ljóst að gögnum við í ESB missum við yfirráð okkar yfir sjávarútvegnum. Við göngum inní kerfi sem er stórt og flókið og alls ekki eins gott og Íslenska kerfið. T.d má nefna að brottkast er lögbundið innan ESB. Er það eitthvað sem við viljum sjá. ESB er stórt og flókið bákn, og nokkuð ljóst að skyndi ákvarðanir sem við Íslendingar höfum þurft að taka undanfarinn ár, t.a.m varðandi loðnuveiðar, verða ekki teknar innan sambandsins.

Hvað varðar landbúnaðarmálin þá er málið í raun einfalt. Göngum við í ESB mun sú tollavernd sem íslenskur landbúnaður hefur búið við hverfa með öllu. Það mun gera Íslenskum landbúnaði erfitt um vik og í raun leiða til þess að hann leggst af að stórum hluta. Og eru menn tilbúnir að greiða þann fórnarkostnað fyrir eitthvað aðeins lægra matarverð.

Það er ég ekki tilbúinn að gera.


mbl.is Lagt til að sótt verði um aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léleg afsökun...

"Borgaraleg óhlýðni er að brjóta lög eða óskráðar reglur samfélagsins á skipulegan hátt" sagði Eva Hauksdóttir aðgerðarsinni á borgarafundi í Iðnó gær, þar sem hún reyndi að klóra yfir og afsaka fáránlegar aðgerðar aðgerðasinna undanfarna daga. Þetta er afskaplega léleg afsökun

Þessi fámenni hópur fólks hefur undanfarið stundað það að ráðast að fólki, eyðileggja hluti, eyðileggja sjónvarpsútsendingar, koma í veg fyrir að menn komi skoðunum sínum á framfæri ofl. Og það sem meira er þau segja að þau séu að gera þetta fyrir þjóðina. fyrirgefið, missti ég af einhverju. Hvenær voru þau kosinn til að gera eitthvað í nafni þjóðarinnar? Ég man a.m.k ekki eftir því.

Þar að auki eru þau dugleg við að koma fram í frétta tímum vælandi og skælandi eftir að lögreglan hefur  séð sig knúna til að skipta sér af aðgerðunum. Lögreglan hefur hingað til sýnt mikla þolinmæði gagnvart mótmælendum og leyft þeim að ganga ansi langt í aðgerðum sínum. Þó hefur hún nokkrum sinnum beitt vægasta valdbeitingartæki lögreglunar þegar of langt hefur verið gengið. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að í öllum öðrum löndum í kringum okkur hefði lögregla verið búin að ganga mun lengra en hér hefur verið gert. Reynið að ímynda ykkur hver viðbrögð Breskra yfirvalda yrðu ef reynt yrði að ráðast inná Hótel, inní sjónvarpsútsendingu, með höggum, spörkum og sprengjum. Þar yrði beitt einhverju öðru en piparúða.

 


mbl.is Stoltir glæpamenn og fjölskyldualbúm lögreglunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól

Þá styttist í það að jólunum verði hringt inn.

Ég vil því nota tækifærið og óska lesendum þessara síðu gleðilegra jóla

 


mbl.is Pílagrímar heimsækja Betlehem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of langt gengið...

Maður ætti náttúrlega ekki að vera veita þessum fámenna hóp öfgasinnaðra mótmælenda athygli. En það margt í málstað þessa fólks sem hræðir mig.

Þeim finnst allt í lagi að beita ofbeldi til að koma fram málstað sínum

Eignaspjöll eru eðlilega í þeirra huga, svo fremi sem menn hafi réttan málstað að verja

Það er í lagi að grýta menn út á götu. Það er bara svolítið fyndið

Þetta fólk telur dómstól götunar bestan til þess fallin að skera úr um það hvort eitthvað     misjafnt hafi átt sér stað

Að sama skapi má lögreglan ekki beita neinum ráðum til að stemma stigum við eignaspjöllum og ofbeldi þessa hóps. Þá er staðið upp og það kallað brot á mannréttindum etc. etc.

Mér þykir þetta vond þróun, mönnum er að sjálfsögðu frjálst að mótmæla, en þeim sem eiga að halda uppi lögum og reglu í samfélaginu ber líka skylda til að stoppa mótmæli sem ganga of langt. Þessi mótmæli hafa undanfarna daga gengið alltof langt.


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill Meistari...

Með Rúnari Júlíussyni er látinn einhver mesti tónlistarmaður Íslenskrar rokksögu. Ég byrjaði að hlusta á tónlist hans þegar að bítlaæðið gekk yfir mig og félaga minn um 11 ára aldur. Við gleyptum í okkur plötur og tónlist hina ensku Bítla, kunnum texta og lög og sungum þau af innlifun. Þá fann ég í plötuskápnum hjá pabba plötu sem bara heitið "Íslensku Bítlarnir: Hljómar". Plata far sett á fóninn og var samstundis sett á stall með hinum plötunum.

Árin liðu og eitthvað dofnaði bítlaáhuginn, en um það leyti sem ég byrjaði í framhaldsskóla kom hann aftur. Ég fór þó að skoða tónlistina í víðara samhengi, hlusta á eitthvað annað. Og þá uppgötvaði ég bestu hljómsveit Íslenskrar rokksögu, að mínu mati. Trúbrot. Ég hlustaði heillaður og fljótlega hafði ég eignast allar plötur sveitarinnar sem hægt var að eignast á CD.

Rúnar Júlíusson var forsprakki þessara hljómsveita, prímusmótor. Hann og Gunnar Þórðarson voru meðal annars þeir einu sem voru í Trúbrot allt frá stofnun til enda. Sporin sem  Rúnar skilur eftir sig eru einstök. Rokkið var hans ástríða allt fram á síðasta dag. Hann var ennþá að koma fram og trylla lýðinn og virtist alltaf ná til fjöldans og hafa einstaklega gaman af.

 Guð blessi minningu Rúnars Júlíussonar..


mbl.is Sárt að missa Rúnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Ég er.....

Þórður Vilberg Guðmundsson
Þórður Vilberg Guðmundsson

Kallaður Doddi svona dagsdaglega!

Reyðfirðingur, í húð og hár

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband